fimmtudagur, 30. apríl 2009

Kvikmyndagerð MR 2008 - 2009

jæja þá þarf maður að taka saman þetta blessaða kvikmyndargerðar ár hjá manni.

Þegar ég skráði mig í kvikmyndagerð þá gerði ég það því ég hef ávallt haft gaman af kvikmyndagerð. Ég bjóst við því að læra mikið um það hvernig best væri að gera myndir og fá svo að reina á þessa nýfundnu tækni.
Ég fékk þannig nokkurn vegin það sem ég vildi út úr þessu námskeiði. Hinsvegar þá bjóst ég við meira af verklegum æfingum. Ég bjóst við því að við fengjum að taka myndavél í hönd og taka upp oftar. Það sem ég hugsa að ég hafi ekki gert mer grein fyrir er að það var aðeins ein myndavél og yfirleitt um fimm eða fleiri hópar. Þetta skapar að sjálfsögðu vandamál. Því held ég að við höfum fengið eins mikið verklegt og er mögulegt miðað við eina vél og stærð á hóp.
Ég tel að það sem hafi reynst mér best, og verið skemmtilegast, var að fara út að taka upp. Að reyna á það sem Siggi Palli var búinn að predika yfir okkur og sjá hvernig það reyndist hvort þetta var bara bölvuð vitleysa eða hvort þetta var í raun heilagur sannleiki sem ber að fylgja. Ég komst að þeirri niður stöðu að ekki þarf að fylgja öllu en svona flest öllu.

Það sem mér fannst einnig mjög jákvætt voru þeir hlutir sem ég prófaði í fyrsta skipti á þessu námskeiði. Eins og til dæmis RIFF og shorts and docs. Ég hafði aldrei farið á kvikmynda hátíð áður og var þetta mjög skemmtileg reynsla. Þökk sé því að hafa þurft að fara á þessar hátíðir mun ég ábyggilega gera það aftur á næsta ári og væntanlega árið eftir það. Á þessum sýningum sá ég mikið af myndum sem ég hefði annars aldrei séð og er ég ævinlega þakklátur fyrir það.
Hinsvegar eru margar af myndunum sem við horfðum á í föstudags tímunum allt annað mál. Jú þarna voru margar góðar myndir eins og Chinatown og Notorius en þarna voru einnig nokkrar ekki svo góðar eins og sænska myndin um kreppuna og Hold Up Down. En maður verður víst að sjá lélegar myndir til þess að geta metið þær góðu betur.

Mér fannst nemendafyrirlestrarnir mjög fróðlegir og mjög gaman að vinna þá. Einnig var ekki síðra að hlusta á þá. Það var mjög gaman að kynnast nýjum leikstjórum og nýjum stefnum.

Í heildina litið þá fannst mér þetta bara mjög skemmtilegt fag. ÉG hefði viljað eiða fleiri tímum í það en maður er víst í fullt af öðrum fögum líka sem þarf að stunda. Ég vil bara þakka Sigga Palla fyrir flott og áhugavert námskeið. Takk.

2 ummæli:

Siggi Palli sagði...

Takk fyrir veturinn og góðar athugasemdir.

Auðvitað væri best að hafa myndavélina í stöðugri notkun, og ég mætti eflaust standa mig betur í því (ég held hún hafi legið óhreyfð næstum allan október). Það er bara soldið mikil skipulagsvinna sem fylgir því, og ég var því miður búinn að taka að mér of mikla kennslu í vetur...

Siggi Palli sagði...

5 stig.

Bloggeinkunn á vori: 9,4.

Lokaloka bloggeinkunn: 9,7.