fimmtudagur, 28. ágúst 2008

Reykjavík Shorts & Docs: Íslenskar heimildamyndir


Ég fór á íslenska heimildamyndapakkann á Reykjavík Shorts & Docs og hann samanstóð af 4 misgóðum myndum. Þær voru Magapína, Sagan um Svein Kristján Bjarnarson - öðru nafni Holger Cahill, Ketill og Kjötborg. Sýningin tók rúma 2 tíma og var seinni hluti hennar vafalaust betri.


Magapína

Ma
gapína var frekar furðuleg mynd um aðgerð sem gerð er á kúm. Hún var skorin upp og maginn var opnaður til þess að fjarlægja nokkra plastpoka sem hún hafði étið vegna ruslagangs. Það var fylgst með allri aðgerðinni og sýnt með smáatriðum öll handbrögð sem voru gerð á henni. Ég taldi þetta vera frekar slöpp mynd og hún vakti óhug hjá sessunaut mínum. Persónulega fannst mér myndatakan ekki góð og voru gæðin á myndinni eins og hún hefði verið tekin upp fyrir 10 eða 15 árum síðan.



Sagan um
Svein Kristján Bjarnarson - öðru nafni Holger Cahill
Heimildarmyndin fjallar um Svein Kristján sem flutti vestanhafs ásamt foreldrum sýnum í æsku og er sagt frá ævi hans þar. Hann lennti í ýmsu og þurfti að koma undir sér fótum án nokkurrar hjálpar. Hann starfaði við ýmis störf og á þrítugsaldrinum breytti hann nafninu sínu í Holger Cahill. Hann kvæntist tvisvar og eignaðist eina dóttur sem var meðal annars ein þeirra sem tekið var viðtal við í myndinni. Þessi heimildarmynd var ekki fyrir mig. Mér fannst hún langdregin og ég hef bara ekki áhuga á því sem var verið að fjalla um. Hinsvegar fannst mér þessi mynd góð sem heimildarmynd þó að ég hefði lítinn áhuga á því sem var verið að fjalla um. Það var farið vel yfir efnið og ekki mikið skilið útundan. Þó svo að hún hafi verið mjög fræðandi þá mun ég ekki vilja sjá hana aftur í bráð.


Ketill
Myndin um Ketil var frekar furðuleg. Mér fannst hún hafa ákveðið skemmtanagildi þó að hún var vægast sagt óhefðbundin. Svolítill hluti myndarinnar fór fram í eldhúsi Ketils þar sem hann er að gefa kettinum sínum að borða út um eldhúsgluggann. Í myndinni heimsækir hann líka vinkona sína og eru þau að leika sér saman með skringileg hljóð og segja hvort öðru skemmtilegar sögur. Ketill er ekki hefðbundin maður, hann syngur fyrir sjálfan sig, semur sögur og talar mikið við dýrin í kringum sig. Það var samt sem áður mjög gaman að fylgjast með honum í þessari heimildarmynd og var hún það sem vakti mann á þessari sýningu.

Kjötborg
Að lokum var það Kjötborg og var hún ljósið í enda ganganna því þetta var vafalaust besta myndin á þessari sýningu. Hún fjallar um tvo bræður sem reka litla hornverslun í miðborg Reykjavíkur. Í þessari mynd er sýnt frá nokkrum hefðbundnum dögum hjá þeim bræðrunum. Þeir segja frá ýmsum skondnum tilvikum sem þeir hafa lent í þessi 30 ár sem þeir hafa rekið búðina. Við fáum einnig að kynnast fastakúnnum þeirra og hver upplifun þeirra er af kaupmannslífinu. Þetta var mjög skemmtileg mynd sem ég mæli með henni fyrir hvern sem er á hvaða aldri sem er.

1 ummæli:

Siggi Palli sagði...

Fín færsla. 5 stig.

Ég held alveg örugglega að Magapína hafi verið tekin fyrir a.m.k. 20 árum síðan. Þar kemur ekki bara til myndatakan heldur líka fötin sem fólkið er í, hárgreiðslurnar og bílarnir sem sjást í lok myndar. Ef ég ætti að taka "wild guess", þá myndi ég segja að hún væri tekin ca. 1985.