
Eftir að hafa séð fyrstu Batman myndina ákvað ég að sjá mynd númer tvö líka en hún er Batman Returns. Mér finnst þessi mynd vera einhvernvegin sú mynd sem minnst bar á hjá mér. Þetta er alla veganna sú mynd sem ég hef séð sjaldnast fyrir utan Batman and Robin sem er niðurlæging í kvikmyndaformi. Michael Keaton fer aftur með hlutverk Batmans. Það eru fleiri frábærir leikarar í þessari mynd eins og Danny DeVito, Michelle Pfeiffer og Christopher Walken. Tim Burton leikstýrir þessari mynd en hann leikstýrði einnig fyrri Batman myndinni. Hann heldur sinni sérstöðu sem leikstjóri í þessari mynd eins og öllum þeim myndum sem hann gerir.
Batman Returns er um veru Batmans (Michael Keaton) í Gotham. Ólíkt fyrri myndinni þá er Batman orðin opinber verndari Gotham og er komin með kalltæki eða Batman ljósið. Það eru tv

Þessi mynd er nokkuð góð hún er að mínu mati ekki eins góð og fyrri Batman myndin en þar er þetta allt svo nýtt og frábært. Í þessari mynd er ekki allt eins ferskt. Ég verð nú samt að segja að túlkun Michelle Pfeiffer á Catwoman er alveg frábær. Ég er ekki búin að sjá Catwoman myndina með Halle Ber

Í öllum Batman myndum síðari ára hafa alltaf verið afbragðs leikarar. Mér finnst svolítið fyndið að George Clooney hafi leikið Batman í þeirri hörmung sem Batman and Robin var. Samt sem áður var góður leikara hópur í þeirri mynd Uma Thurman og Arnold Schwarzenegger. Þetta var bara lélegt handrit og ég hef ekki getað horft á hana síðan ég var tíu ára en hún er bara of kjánaleg. Enn menn á borð við Jim carrey og Tommy Lee Jones hafa einnig leikið í þessum myndum.
Núna verð ég sa

En Batman Returns er hörku mynd ekki sú besta í seríunni en líka langt frá því að vera sú versta. Ef þú hefur gaman af Batman þá er þessi mynd skildu sýn. Hún fær 6,9 á IMDB.com sem er ekki svo slæmt en ekkert frammúrskarandi.
Hér er trailerinn fyrir hana:
1 ummæli:
5 stig.
Skrifa ummæli